Og hvað með Kyoto bókunina?

Marga þvælu hef ég lesið í fréttum af ríkistjórn Bandaríkjanna en þessa þvælu tek ég álíka trúlega og þegar ég heyrði að Pétur Blöndal sagði að það væri ekkert mál að lifa á 90 þúsund krónum á mánuði. 

Stjórn USA sagðist ekki vilja einu líta við þessari "heimskulegu" Kyoto bókun því þetta væri einfalt bull.  Nú er eitthvað verið að klóra í bakkann rétt fyrir kosningar eða þá að reyna að fá heiminn til að líta öðruvísi á USA, þar sem viðhorf heimsins við USA hefur farið gríðarlega niður á við.

Ætti nú að fara að gera eitthvað við þessa blessuðu stjórn bandaríkjanna og fá þá til að opna sín augu vandlega og sjá að þetta er ekki besta þjóð í heimi eins og þeir halda ennþá fram.


mbl.is Rice segir Bandaríkjamenn taka gróðurhúsaáhrifin alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Ef ætlunin er virkilega sú að minnka losun (manna) á C02 í andrúmsloftið þá hefur Kyoto EKKI sýnt sig að vera áhrifaríkasta leiðin. Leið Bandaríkjamanna er sú að ýta undir þróun sparneytnari tækni sem má koma á markað án þess að stífla tannhjól hagkerfisins. Hún hefur virkað mun betur en Kyoto-þvælan.

"Nú um stundir er útblástur gróðurhúsalofttegunda án efa helsti kvarðinn sem notaður er á árangur ríkja í umhverfismálum, með réttu eða röngu. Kyoto samkomulagið um takmörkun á útblæstri snýst um að hægja sem mest á aukningu útblásturs. Bandaríkin stóðu sig tvöfalt betur en gamla Evrópusambandið á árunum 2000 til 2004 þegar þessi mælistika er notuð. Og stjórn Bush stóð sig fjórfalt betur en stjórn Clintons og Gore gerði á seinna kjörtímabili sínu." (heimild)

Geir Ágústsson, 27.9.2007 kl. 16:37

2 Smámynd: ViceRoy

Já nei ég meinti þegar þetta var borið upp við þá, gáfu þeir skít í allt sem viðkom að minnka mengun, sögðu að þetta væri allt bölvað bull.

ViceRoy, 27.9.2007 kl. 17:05

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Það var í tíð Clinton og Al Gore sem Kyoto bókuninni var hafnað af Bandaríkjunum. Bush hefur bara haldið þeim fána á lofti síðan og gerir vonandi áfram.

Geir Ágústsson, 27.9.2007 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

ViceRoy

Höfundur

ViceRoy
ViceRoy
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband