Sóley : Hvar er skjaldborgin 3 árum síðar??

Loforðið um það er ein mun meiri vanvirðing við fólkið í landinu! Plaggið frá ríkisstjórninni var tilbúið fyrir síðustu kosningar... og ekkert hefur gerst... borgarstjórnin (styð hana ekki) er að leggja plagg við áætlun fram... hálfu ári seinna og ríkistjórnin hefur ekkert gert fyrir fólkið í landinu í 3 ár... þarf ég að segja meira??
mbl.is Fádæma vanvirðing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá leiðrétting

Taxi eru myndir :P ekki þættir.... og það ekki af óæðri endanum :Þ
mbl.is Sýndi óæðri endann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

32 á móti 30 og 1 situr hjá.. sú er brú þings og hverra??

    Maður spyr sig, einn þingmaður innan stjórnarflokkanna kýs á móti, og ef nú Guðmundur Steingrímsson hefði valið þann kostinn að segja já, þá hefði þetta svo tæplega fallið...31 gegn 32... naum staða sú... 

     Nú er það svo að það eru einungis ríkisstjórnarflokkarnir 2 sem sögðu já, að undanskildum einum manni, sem á heiður skilinn fyrir að svara máli sínu á eigin forsendum... Rest þingsins styður vantrausttillögu.  Hvað segir þetta okkur? Jú að ríkisstjórn lands okkar er hið eina afl innan þingsins sem styður ekki þá tillögu að þeir sjálfir sitji áfram, nema þessi eini þingmaður innan flokkanna tveggja.

     Hver er þá staðan? Ef þetta er ekki pattstaða þá veit ég ekki hvað.   (Spurningin er hvort einhver á þingi fari ekki fram á hið nýjasta "trend" íslensku þjóðarinnar, og heimti þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta :P hehe ) 

    Ef staðan er sú... er þá ekki þjóðin aðilinn sem ætti að fá að kjósa um þetta? Hverjir eru betur starfi sínu vaxnir en þeir sem í landinu búa? Ekki virðist ríkisstjórnin starfi sínu vaxin... Blaðrandi um að þeim hafi tekið hitt og þetta sem í raun var bara partur af áætlun Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins... meða allt annað hefur fengið að sitja á hakanum, svo sem "Allt upp á borðið" Við höfuð séð allt uppi á borðinu já...  "Skjaldborg um heimilin" Þarf að nefna skuldavanda heimilanna og raðir í matargjöfum? "Atvinnuleysið niður" Mesta atvinnuleysi síðan 1930 segja þeir???  "Spillinguna burt" Hér mega koma nú dæmi frá öðrum, datt ekkert í hug í fljótu :P "Jafnrétti kynjanna" Þarf að nefna þetta??  "Norrænt velferðarkerfi" Skerum niður í heilbrigðismálum! FLOTT hjá ykkur "Eflum menntakerfið" enn og aftur... þarf að nefna þetta? ... og má örugglega lengi telja  (ef einhverjum dettur í hug)

 Hver á síðasta orðið... þing eða þjóð??? 32 á móti 30 og 1 situr hjá... Við gætum setið við stjórnarkreppu í einhverja mánuði á meðan ný ríkisstjórn kemur sér fyrir... eða setið í þessari vitleysu fram til kosninga 2013... 

Ég reyndar hafði gaman að þeirri  athugasemd Siv Friðleifsdóttur um að skipta ætti út ríkistjórn án kosninga... Sem svo kom mér í aðeins meiri umhugsun, Það hlyti að koma reyndar sennilegast að enn vitlausari stjórnmálamönnum í stöðu ráðherra, því hverjir sitja í ríikisttjórn? Formenn Sf og Vg... og ættu það ekki að vera reyndustu og klárustu menn flokksins?? 

Ég bara spyr!


mbl.is Vantrauststillaga felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanda þetta betur!

Er Messenger 46 kílómetra frá sólinni já?? Einmitt, sé það alveg fyrir mér.

 Það þarf nú stundum að lesa greinarnar, sem skrifaðar eru,  yfir áður en þær eru sendar inn for crying out loud!


mbl.is Á sporbraut um Merkúr í fyrsta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegt

Ef lánið er ólögmætt.... hvernig getur það þá farið í vanskil?  Hvernig getur eitthvað sem dæmt hefur verið ólögmætt, farið í vanskil á lagalegum grunni? Ekki þa, ég er ekki með myntkörfulán, en ég verð bara að segja, að ef rétt reynist að þessi lán eru í raun ólögmæt, þá finnst mér skrýtið að bankar og fjámálastofnanir geti með lagalegum hætti rukkað fólk um vanskil á láni sem hugsanlega er ólöglegt... Held ég geti ekki sett skýrara fram. 

Bara pæling. 


mbl.is Byr sendir óbreytta greiðsluseðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógnaður hnífi

Væri nú gaman að sjá ræningja koma inn í verslun með hnífinn að hálsi sér og hóta öllu illu ef peningarnir úr kassanum væru ekki afhentir.

Talandi um óvandaða frétt og vöntun á yfirlestri á frétt, þó hann væri hraður, þá myndi hann koma í veg fyrir svona vitleysu.


mbl.is Vopnað rán í verslun í Hlíðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2 ár

"Þá segir dómurinn ljóst, að háttsemi af þessu tagi sé almennt til þess fallin að valda þeim, sem fyrir verður, margvíslegum sálrænum erfiðleikum. Í greinargerð sálfræðings komi fram að sú hafi orðið reyndin að því er stúlkuna varðar og samskiptin við manninn hafi haft alvarleg og víðtæk áhrif á hana."

Eitt líf eyðilaggt og er það 2 ár í fangelsi?  Held það verði alvarlega að fara að endurskoða dómsvaldið.


mbl.is Tældi stúlku með gjöfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar alltaf eins!

Þvílíkir þöngulhausar og fífl Íslendingar geta nú verið.... Hollenska þjóðin er að skora á eigin heimastjórn um að falla frá þessum kröfum á hendur íslenska ríkinu með undirskriftasöfnun. Og hvað gera fíflin í íslensku samfélagi um leið og þeir heyra af þessari undirskriftasöfnun? Fara inn á heimasíðuna og skrifa undir... Marktæk undirskriftasöfnun það þegar helmingurinn ef ekki meira af undirskriftum á þessum lista verða íslenskar...

Um leið og þeir sjá svona fréttir, þá nægir ekki að vita af því að svona stuðningur er til staðar, heldur fara þeir og skrá sig á listann. Þvílík heimska segi ég nú bara.

 


mbl.is Hollendingar skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimspressan

Ja hérna... Ég segi kallgreyið... og ekki af því að hann hélt fram hjá.. Ef Tiger Woods væri vinur minn, þá myyndi ég nú dkki bding xnúa bakinu í hann, heldur reyna aðeins að hjálpa honum að átta sig á gæðum lífsins og því sem skiptir máli...

En ég er ekki vinur hans... ÉG þekki hann ekki neitt. Það gera sennilegast um 0.000013% allra manna á jörðinni, ef þá það mikið.  

Ef vinur þinn lifði tvöföldu lífi og væri alkóhólisti ásamt því að vera fjölskyldumaður/kona og gefa sig út fyrir það, myndirðu verða brjáluð/aður út í viðkomandi  og snúa bakinu í hann? Ég hugsa sem alvöru vinur vina minna að ég myndi frekar reyna að styðja við bakið á VINI mínum og hjálpa viðkomandi í gegn um málið, hvernig sem það leistist, og ef það væri sama hugsunin hjá viðkomandi og engin eftirsjá þá myndi ég nú reyna að opna augu viðkomandi. 

 Hvað í andkostanum kemur það einhverjum við hvað einhver gerir í sínu einkalífi? Myndi ég vilja heimspressuna á mér alla daga allan daginn? Ummm nei! Ef ég væri ekki 100% eins og ég var þegar heiimspressan uppgötvaði mig, myndi ég allt í einu segja "Ég er í raun ófreskja sem heldur fram hjá konu sinni"? Ef það hefði frést að Freddie Mercury hefði veið hommi áður en hann dó, hefði þá hálfur heimurinn snúið bakinu við honum því hann var hommi? 

 Hvað er að fólki??? Þetta kemur nákvæmlega engum við... Ef þetta hefði verið Vijay Singh þá hefði nákvæmlega enum verið sama... Ernie Els, Padraig Harrington og svo mætti lengi telja... 

Á fólk (og þá meina ég að ef þú ert að lesa fréttir um Tiger Woods og verður reið/ur, ekkert líf? Drullaðu þér út og fáðu þér þitt eigið líf, það er minn punktur


mbl.is Tiger hættir keppni ótímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

ViceRoy

Höfundur

ViceRoy
ViceRoy
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 5756

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband