Færsluflokkur: Bloggar
15.7.2009 | 23:33
Smámál en... LÝST???
Fólki líst vel á eitthvað, enda kemur það af orðinu að lítast á, en ekki lýsing eða ljós.
Ég veit þetta tengist þessari frétt ekki nokkurn skapaðan hlut, nema þessi villa, en djöfull stingur þetta í augun á mér!
Líst illa á inngöngu Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2009 | 08:14
Vanda fréttirnar!
Væri þetta stafsetningarvilla, þá væri þetta eitt.... En það er mikill munur á því hvort Obama ræði við forseta NORÐUR eða SUÐUR Kóreru!
Fyrirsögn segi "Forseti Norður-Kóreru hittir Bandaríkjaforseta" en fyrsta línan segir hins vegar "Forseti Suður-Kóreru hittir Bandaríkjaforseta"... Lesa blaðamenn mbl.is ekki fréttirnar yfir áður en þeir staðfesta fréttirnar inn á heimasíðu mbl.is?
Forseti Suður-Kóreu hittir Bandaríkjaforseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.11.2008 | 22:55
Ef Páll Magnússon hefði nú bara...
Lækkað laun sín og sinna helstu 11 stjórnenda hefði hann hugsanlega getað sleppt öllum þeim uppsögnum sem hann "þurfti"... Nú er Morgunútvarpið að leggjast út af AFTUR.... Gestur Einar, samkvæmt mínum fréttamiðlum, hefur víst verið sagt upp... Einum af skemmtilegri útvarpsmönnunum á Rás 2....
Það hefði væntanlega verið hægt að koma í veg fyrir flestar uppsagnir með niðurskurði upp á 50 milljónir í laun til stjórnarmanna tímabundið.
Ekki hef ég í hið minnsta að stjórnendur skerði laun sín.
Árslaun útvarpsstjóra 18 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2008 | 00:22
Joseph Fritzl er nær en við höldum
Á fyrri tímum var það "út í glugga" þegar sírenur heyrðust... þótt undarlega megir heyrast góður lesandi að það var líka svoleiðis í Breiðholtinu... Sem fordómar ganga enn gegn... Þó það sé hverfi sem íbúar eru rúmlega 10% þjóðarinnar, eða efra, neðra, efra, berg, fellar og seljar... Þá man ég að ef sírenur heyrðust þá hlupu allir útí glugga að athuga hvað hefði gerst... hvar það gerðist...
Þetta gerðist örsjaldan. Nú í dag eru sírenur hvers dags dæmi og það kippir hvorki aldraður né ungir löppum að gluggum hvar sem er.
Nú spyr maður.. Hvað er langt í það áð svona hlutir gerist hér eða enn verra (þótt ljótt sé að segja (miðað við fréttir)) að fyrsti fjöldamorðingi fari að ganga til gjörða hér á landi?
Ekki að ég sé svartsýnn en þetta sé ég fram á geti mögulega gerst...
Við spurðum okkur örugglega að því á sínum tíma hvenær fyrsta morðið yrði framið hér... nú eru þetta 10+ á ári og miðað við höfatölu þá er þetta bara tímaspursmál...
Vona löggan sé virkilega góð hér á landi :D
Nauðgaði dætrum sínum um árabil | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2008 | 23:17
Hvar snerist málið við?
Hví liggur nú við að við verðum að sættast við Breta og Hollendinga um Icesave reikninga?
Getur þetta mögulega átt við um þessa frétt (ef rétt reynist að Bretar hafi mikið að segja um í IMF?)
http://visir.is/article/20081105/VIDSKIPTI07/904200899
Er Brown einfaldlega að kasta því á okkur að ábyrgjast þetta áður en Breska þingið einfaldlega kemst að því að hin eiginlega breska ríkisstjórn gæti mögulega verið ábyrg fyrir klúðrinu sem uppi varð? Að þeir geti þó undir endann sagt að við höfum undir endann ábyrgst lánin?
Ef við hins vegar stöndum við okkar og höldum okkar striki og samþykkjum ekki þessa skilmála, breska þingið kæmist hins vegar að því að Gordon Brown og Allistair Darling (og auðvitað þeirra menn innan ríkisstjórnar) hafi vitað af yfirvofandi vandræðum (og hugsanlegu hruni íslensku bankanna (og þar með Icesave)) að breska ríkið standi frammi fyrir gríðarlegum skaðabótaskyldum gagnvart íslensku þjóðinni?
Þetta getur lítið annað verið, þegar þetta stígur allt í einu fram í sviðsljósið, þegar þetta virtist allt vera í höfn....
Og nú spyr ég þar að auki... ef þessi stýrivaxtahækkun var óhjákvæmleg vegna IMF (miðað við þá stýrivaxtalækkun sem gerð var nokkrum dögum áður).... hví var hún þá gerð? Og ef það var ekki vegna IMF... hví var þá þessi stýrvaxtalækkun gerð nokkrum dögum áður??? Til þess eins að hækka hana nokkrum dögum seinna???
Og svo sagði Geir H. Haarde að stýrivaxtahækkunin hafi verið (eins og ég sagði áður) óhjákvæmileg... af hverju mótmælti hann þá ekki stýrivaxtalækkun þegar hún var gerð? Þar sem seðlabankastjórar sitja undir stjórn Forsætisráðherra?
Og ef þessi ákvörðun seðlabanka var svo vitlaus að forsætisráðherra þurfti að segja þeim að hækka stýrivexti... segir það þá ekki forsætisráðherra að seðlabankastjórar (ft.) séu vanhæfir? Fyrst þeir þurfi að hlusta á ráðherra í stað þess að vita hvað þeir eru að gera?
Bara svona í gamni?
Við hættum frekar við lánið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2008 | 20:31
Eyddu þeim í...
Að borga niður allt sem þú hefur tekið að láni hver sem þú ert...
Ríkisstjórn og seðlabanki verða að ganga í takt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2008 | 00:35
Einn maður mikið mál en heil þjóð smámál!
Þarf ég að segja meira um þetta atkvæðasjúka fyrirbæri?
Símahrekkur dregur dilk á eftir sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2008 | 21:02
Ég hugsa að skaupið í ár...
Skaup í skugga kreppu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2008 | 20:59
Mjög góð stefna þó hún virðist heimskuleg
Þetta kalla ég rétt viðbrögð þar sem einfaldlega akkúrat þetta sýnir hvað allir eru að leggja gríðarlega mikið álag ofan á verð á veitingastöðum.
Þarna tekur hann á sig tap á hverjum seldum rétti, en mjög hugsanlegt að viðskiptin aukist það mikið að hann komi einfaldlega út í gróða. Þú verður að tapa til þess að græða (eitthvað sem bankarnir hefðu átt að hugsa út í :Þ ) sem mætti segja að þessi ágæti veitingastaður hefur ef til vill hugsað út í.
Taílenskur veitingastaður lækkar verðið í kreppunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2008 | 23:46
Samheitalyf?
Varað við of mikilli aspirin-notkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
ViceRoy
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar