Færsluflokkur: Bloggar

Er það skrýtið?

Við náðum ekki sæti í öryggisráði NATO, gjaldeyrisforði Rússa hefur rýrnað gríðarlega bara þessu síðustu viku, og við eigum fáa sem enga vini virðist vera sem vilja hjálpa (hefðum jú getað fengið hjálp frá frændum og bræðrum/systrum í Noregi, en hana þáðum við ekki.

Nú höfum við lítið að bjóða, því hjálp Rússa á NATO þjóð (hvað þá sem hefur sæti í öryggisráði (sem gæti væntanlega staðið með Rússum)) hefði verið gríðarlegt kjaftshögg á NATO (og kannski reið það okkur til falls í kosningu (þó utanríkisráðherra segir annað))

Bara smá kenning (sem örugglega flestir hér hugsa hvort eða er.... varð bara að koma því á blað býst ég við (eða skjá))


mbl.is Rússar vilja meiri upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neita bara að borga meira :D

Nú væri gaman ef hægt væri (eða hitt og) fyrir þjóðir að standa saman gegn OPEC ríkjunum og einfaldlega neita að borga meira en ákveðið fyrir olíutunnuna. Gaman væri að sjá svipinn á þessum furstum þegar þeir stæðu frammi fyrir því að þeirra hagur myndi frjósa ef allir neituðu að borga meira en 20$ fyrir tunnuna :Þ

Meira í gamani en öðru, en það væri hins vegar gaman sjá :D


mbl.is Olíuverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er um að gera fyrir alla Íslendinga að...

Halda smetti og vera jafn almennilegir við náungann og við höfum alltaf verið... Við græðum jú lítið á því að ráðast á breta því hann sé breti og hans forsætisráðherra hafi nú sett á okkur hryðujuverkalöggjöf sem átti víst "bara" að eiga við um landsbankann (hvað ætli það endi sem stórt mál)...

Okkur er úthýst af einhverjum sálum hér og þar... en við verðum hins vegar að halda okkar ró og vera akkúrat eins og við erum, elskum þessa blessuðu útlendinga sem hingað koma... ekki koma þeir allir hingað til að segja okkur að við séum fífl :D

Um leið og Íslendingar fara að gera mál við mann og annan vegna þjóðernis, þá fer þetta að fara úr böndum.  Því eins og við mörg erum væntanlega að hugsa "Er það okkur að kenna að 20-30 manns hafi ráðið niðurlögum ríkis og þjóðar ásamt okkar blessaða ríki og ráðamönnum" þá ættum við ekki að sakast við breta fyrir aðgerðir einnar ríkisstjórnar (minnir mig á 2 menn sem samþykktu stríð í ákveðnu landi án nokkurs manns samþykkis)

Nú er að hagnast á þessum blessuðu ferðamönnum sem enn hafa fyrir því að koma hingað og koma með rök við menn sem á móti spyrna :D


mbl.is Úthýst vegna þjóðernis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef Gordon Brown tók orð Davíðs alvarlega þá...

Er hann að taka orð "ópólítísks" manns of nærri sér. Davíð Oddson hefur ekki lengur rétt stjórnmálamanns... Þar af leiðandi eru orð hans í Kastljósi (Þar sem viðtalið var eingöngu gefið til að gefa honum færi á að koma sínum orðum á framfæri og verja sig) ópólitísk og þar af leiðandi engan vegin tilkynning stjórnvalda.... sem mætti segja á ensku "Unofficial statement", sem eingöngu þýðir að þetta er eina tilkynning "stjórnvalda" sem breska stjórnin hefur brugðist við. Ef Geir H. Haarde hefði sagt þetta í yfirlýsingu beint til breskra stjórnvalda þá hefðu viðbrögð Browns verið hárrétt, þ.e. að frysta eignir íslendinga í Bretlandi.

Það sem Brown gerði hins vegar virðist vera er að taka orð Davíðs sem yfirlýsingu stjórnvalda (sem Davíð hefur enga heimild til að gefa út, sem gerir orð Davíðs ómerk) og þar af leiðandi ranga yfirlýsingu sem gerir þar af væntanlega bresk stjórnvöld skaðabóta gagnvart íslenska ríkinu og Kaupþing banka (krónan féll og kaupþing á hausinn), þar sem engin yfirlýsing stjórnvalda hafa verið gerð á þessum tímapunkti.

Þar fyrir utan standa íslenskir fjárfestar sem koma málinu ekkert við, fastir vegna ákvarðanna breska forsætisráðherrans, vegna frystingu eigna íslenskra fjárfesta. Og ekki skal nefna þá sem búa þar og enduðu með 9 mánaða fyrirframgreiðslur á leigíbúðum sem auðvitað var engin leið á að borga. Námsmenn erlendis enduðu með að geta ekki tekið út nema ákveðnar upphæðir sem og íslenskir ferðamenn.

Stendur Davíð Oddson að þessu? NEI! Og ástæðan er einföld... Bresk yfirvöld tóku orð seðlabankastjóra í viðtali sem var, og ég sletti aftur "Unofficial by the government", tæk sem orð forsætisráðherra, sem hefðu verið "Official"... Ríkið sagði aldrei að þeir myndu undir neinum kringumstæðum gangast gegn þessum skuldum né að gangast samkvæmt ábyrgð og þ.a.l. eru bresk stjórnvöld valdur að meira hruni hér en nokkru sinni hefði þurft að vera, þ.e. hruni Kaupþings.

Davíð Oddson lét út úr sér orð sem, já hann hefði kannski ekki átt að láta út úr sér... Sagði að íslensk stjórnvöld myndu ekki taka á sig skuldir þeirra sem hér ollu "Fárviðri íslensks efnahags" (sagði þetta ekki svona en svona var þetta meint) og bresk stjórnvöld tóku þetta sem opinbera yfirlýsingu frá íslenskum stjórnvöldum, sem auðvitað er langt því frá, enda eigin skoðanir Davíðs út frá hans sjónarhóli (sem eru að öllu rétt þar sem við eigum ekki að skuldsetja okkur til næstu 50-100 árin vegna mistaka banka (í þenslu) og ríkisvalds (vegna aðgerðarleysis og fáranlegrar fyrirsjár íslensks efnahagslífs)

Það er alla vega mín skoðun þegar hratt er á málin litið.

 Ég skil vel gremju stjórnvalda Bretlands, enda ber þeim skylda að verja hag þjóðar sinnar sem og okkur, ég skil enn betur gremju almennings á Bretlandseyjum, enda þeirra hagur sem er í húfi, en ég skil ekki aðgerðir Breskra stjórnvalda gagnvart íslensku þjóðinni þar sem engin opinber yfirlýsing hafði verið gefin út af íslenskum stjórnvöldum...

Orð Davíðs voru aldrei yfirlýsing að mínu mati, heldur hans eigin mat á stöðunni. Við getum kennt Davíð um eitt og annað, en það er okkar eigin barmur (því miður) sem við þurfum að líta í eigin barm og sætta okkur við þá stöðu sem við höfum leyft okkur að koma okkur, fyrir utan þau auðvitað sem sáu þetta fyrir sér gerast fyrir mörgum árum síðan.


mbl.is Hvað sagði Davíð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljós í svartnættinu

Þetta þykir mér góðar fréttir og glæsilegt að sjá að öll þjóðin skuli standa með kvenfólki með brjóstakrabbamein í einu og öllu, sem segir manni að fólk er ekki alfarið að hugsa um eigin vandamál. Eins og ég segi og hef lengi sagt, þú getur horft í eigin barm og hugsað mér þér "Af hverju eru vandamál mín svo stór"... það er alltaf einhver þarna úti sem á stærri og meiri vandamál en þú á sínum herðum.
mbl.is Bleikt ráðhús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú minnka arabalöndin framleiðslu brátt

Ég vil byrja á að biðjast afsökunar á heimskulegu bloggi mínu í gær, enda vil ég benda á að ég var eingöngu að benda á hinar hliðar sem og eingöngu vangaveltur þess sem ég er alfarið á móti, sem eru dauðarefsingar.  Ætli einhver Skarphéðinsson hafi ekki gripið í taumana í þeim "löndum"

Nú er hins vegar spurningin hvað verður um okkar blessaða olíustöðu?

Ef ég þekki olíuheim Íslands rétt, þá munu öllum brögðum beitt (án þess að benda fingri á einn né neinn) til þess að hækka olíuverðið á Íslandi. Dollar hefur hækkað, Evra hefur hækkað, við getum ekki keypt inn, krónan hefur lækkað í kjölfar kreppu á Íslandi, við eigum ekki birgðir og lentum í hæstu krónutölu á markaðinum við viðskiptin vegna skringilegrar stöðu krónunnar... en samt af fáranlegri ástæðu, sama hvað hver segir þá munu olíufélögin lenda í nánast sömu króntölu og samkeppnisaðilar.   Krónan er hvergi sú sama og ef olíufélögin kaupa af sitthvorum aðilunum ætti það að sýna sig í breytileika verðs á olíu, þ.e.a.s. eitt félagið breytir verði og annað í kjölfarið í minna eða meira... en upp mun sú staða koma að öll olíufélög breyta sinni krónutölu í það nánast sama, sama hver staðan verður, því skal hver maður trúa, sama hvað hver segir, sama hvaða ruglingur er á markaðnum utan Íslands, sama hvaðan olían er keypt.

En olían á væntanlega eftir að hækka næstu daga ef ég þekki þá rétt. Þó var nú skömminni skárra þegar olíufélög breyttu verði eingöngu um mánaðarmót, og þá til að gangast upp í eða niður í vegna breytingar gengis. Nú breyta þeir hins vegar dags daglega, og sem fyrrverandi starfsmaður slíks fyrirtækis, án vitundar starfsmanna bensínstöðva, sem oftar en ekki stóður glórulausir á dælunum þegar hækkanir komu upp.

Þrátt fyrir fall olíuverðs í heiminum, þá munu þeir finna leið til að hækka verða á bensíni og hráolíu, sem og hækkandi verðs á hverju sem er innan sinna verslana.

Ég er svo sem ekki að segja neinum neitt sem enginn vissi nú þegar... en kannski það sé einhver sem ekki veit hvað gæti gerst hjá okkar furstum olíunnar :Þ

 

 

 


mbl.is Hráolíuverð ekki lægra í eitt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er til fljótlegri leið

Þótt ljótt sé að segja... þá eru 6-10 byssukúlur fljótvirkari leið og mun sársaukaminni, sprautan og stóllinn talin versti dauðdagi sem til er af öllum þeim dauðaleiðum sem BNA leitast... en búið er að banna stólinn í flestum ríkjum, og því ekki sprautuna og dauðadóm yfir höfuð?

Þeir urðu nú brjálaðir þegar hermaður var tekinn af lífi af aröbum... af hverju ekki að vera brjálaðir yfir því að bandarískur ríkisborgari skuli vera tekinn af lífi í eigin landi?

Er maður fylgjandi dauðrefsingu?  Maður verður að spyrja sjálfan sig, en ekki bara spurningu í tómið og svara, heldur að horfa ofan í kjölinn í því máli hvort og hvenær hún virðist eiga rétt á sér. Eins og málið með Joseph Fritzl, á sá maður í raun (maður sem hefur tekið frelsi og rétt til lífs (því svo ég bæti við sviga... hversu mörg ár hefðu þau átt eftir í áframhaldandi gíslingu og hvað ef sá gamli hefði dáið, sem hefði væntanlega leitt til dauða þeirra allra úr hungri því þau höfðu vatn) ég man ekki einu sinni hversu margra manneskja) rétt á því að lifa?

Hvar drögum við mörkin? Og á hvaða tímapunkti, miðað við fjölda glæpa og alvarleika glæpa. Margir Íslendingar hafa haft svo á orði að Steingrímur Njálsson væri einfaldlega réttdræpur fyrir sína glæpi, aðrir hafa viljað veita honum hjálp... Sumir einfaldlega vilja ekki hjálp og þ.a.l. stunda áfram sína glæpi... hvað á að gera við slíka menn? 

Svo ég fari yfir stöðu (tekið úr Sönn Íslensk Sakamál) Steingríms, þá var hann oft og mörgum sinnum tekinn fyrir ölvunarakstur í sama umdæmi, í Héraði, og játaði brot sín gagnvart ungum strákum að mestu... Ítrekin brot sem eyðilögðu fjölskyldur og líf þolenda að miklu leyti, ef ekki að öllu, og aldrei sat hann inni, þrátt fyrir ítrekuð brot lengur en 1-2 ár, sama hversu oft hann braut af sér.

Ég spyr sjálfan stundum, (þótt ljótt sé að segja) ef við erum að horfa í það að hver sá maður sem lifir (karlmaður sem kvenmaður) hafi sinn rétt til lífs... ef viðkomandi tekur ekki réttindi lífs annarra sem virðingarvert líf... og það í trekk í trekk.. hvaða lífsrétt hefur viðkomandi?

Þegar sekt þykist betur en sönnuð, hvaða rétt á slíkur aðili?

Kannski ég veki einfaldlega hörð virðbrögð eða þá að ég vekji spurningar um mína eigin gáfur... en þegar við horfum á mörg líf eyðilögð vegna gjörða eins manns, og horfum á gjörðir sumra fórnarlamba slíks manns, hvaða rétt á slíkur maður í eigin þjóðfélagi?

Spurðu þig þá frekar þegar að svona málum kemur, hvað ef þetta kæmi mér við? Mitt barn? Mín eiginkona? Minn eiginmaður? O.s.frv. í gegnum alla fjölskylduna og gefðu svo svar við hvort dauðarefsing eigi rétt á sér, í einstaka tilvikum, þó svo það þyki sannað að BNA deyði sumt fólk sem saklaust er, hver hefur rétt á sér sem lifandi einstaklingur?

 

 


mbl.is Dauðdaginn kvalafyllri vegna offitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tæknilegir örðuleikar?

Ætli það sé tæknilegt eða er þetta vísindalega sannað?

Þó maður hafi nú ekki húmor fyrir öllu sem þeir gera, og stundum sé það nokkur aulahúmor, þá myndi maður nú sakna að hafa þá ekki á laugardagskvöldum. Menn eru að væla yfir því að þeir séu staðnaðir og ófyndnir... þetta er nú ekki nema 20 mínútna þáttur eða rétt svo rúmlega... Þarf enginn að horfa sem ekki vill.


mbl.is Seinasti vetur Spaugstofu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjaftæði og lítið meira!

Þeir leggja svo svakalega á suma hluti að það hálfa væri nóg! Margborgar sig oftast að kaupa þetta að utan, enda fær maður meiri gæði á minna verði!


mbl.is Miklar hækkanir á bílavarahlutum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

ViceRoy

Höfundur

ViceRoy
ViceRoy
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband