Hvað á að gera við svona drullusokka?

Þetta er alveg fáranlegt að það sé ekki fylgst mun betur með þessum verktakafyrirtækjum.  Svona drullusokkar eins og þessir verktakar virðast vera, svindla ekki bara á kerfinu og fólkinu, heldur halda launakerfinu í þessum geira í fáranlegu ójafnvægi. 

Í staðinn fyrir að fólk fái sín laun og sínar launahækkanir í takt við kjarasamninga, þá reka þeir liðið og fá útlendinga sem þekkja ekkert á kerfið í vinnu á lágum launum... Þarf ekki líka að skoða hvort þetta hafi verið svört vinna?  Ætti þá ekki fyrirtækið að greiða háar sektir fyrir að borga mönnum án þess að gefa það upp til skatts? 

Á að láta þá borga þessum verkamönnum háar skaðabætur án dómsstóla og láta þá sæta gríðarlegum sektum fyrir svona uppákomu.

Ef verkalíðsfélögin eru ekki að fylgjast með þessu, til hvers eru þá verkalíðsfélögin?  Hélt þau ættu að vera til hjálpar fólkinu. Og hvar eru Samtök Atvinnulífsins í þessu?  Af hverju bera þeir ekki þá ábyrgð að skoða mál fyrirtækja sem undir þeim eru?

Kannski ég hafi rangt fyrir mér, en þetta er grafalvarlegt mál að öllu leyti fyrir íslenskst atvinnulíf sem allir hafa vitað af... Held það sé kominn tími á að það verði eitthvað gert í þessum málum fyrst eitt málið er komin almennilega upp! 


mbl.is Ásakanir um lögbrot gegn starfsmönnum GT verktaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verkalýðsfélögin með ypsiloni held ég að sé réttara frenkar en Gvendurynn sem ætti frekar að vera Gvendurinn

Gvendurynn (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 10:19

2 Smámynd: ViceRoy

Uhumm :O ekki oft að ég geri stafsetningarvillur en jæja :D hlýtur að gerast öðru hvoru þegar maður skrifar í flýti

ViceRoy, 6.10.2007 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

ViceRoy

Höfundur

ViceRoy
ViceRoy
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband