Færsluflokkur: Bloggar

Humm

Veit nú ekki betur en að árásin frá öfgafullum Hamas liðum hafi verið hefndarverk eftir að Ísraelar sprengdu sprengjurnar um daginn...  Eiga sem sagt Palestínumenn bara að leyfa Ísraelum að sprengja hér og þar til að ná nokkrum kónum og svara ekki fyrir sig?

Þar fyrir utan er þetta öfgahópar... ekki ríkisstjórnin sem sendir þessi flugskeyti inn til Ísraels, en það er hins vegar ríkisstjórn Ísraels sem hefnir sín á allri Palestínu, virðist vera, á móti.

Þetta er eins fáranlegt og hægt er ef ég má leyfa mér að segja.  Palestína er með menn sem ekki "tengjast" ríkisstjórn landsins, berjast fyrir land sitt og sín trú og þeir kallast hryðjuverkamenn. Þeir eru að gera nákvæmlega sömu hlutina og Ísraelsmenn, nema Ísraelsmenn hafa sýnt gríðarlega grimmd (þá sérstaklega herlið á Gasasvæðinu) og það gagnvart saklausu fólki, en það er þá bara her að gera skyldu sín þegar heiminum skoðar hlið málsins?

Ég sé mikið réttlæti í því...  Ísraelsstjórn er gjörsamlega að drepast úr mikilmennskubrjálæði, ætla nú ekki að fara að dæma borgara Ísraels, enda koma þeir málinu ekkert við, frekar en saklausir borgarar Palestínu.


mbl.is Olmert: Líðum ekki flugskeytin lengur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann fer þá væntanlega bara heim!

Kemur mér persónulega ekki á óvart ef hann skyldi gera það... Enda hlýtur það nú að hafa borist milli Pólverja á Íslandi að þeir geti bara farið heim þótt farbanni sé yfirlýst.... Sérstaklega þar sem Pólland framselur ekki pólverja.


mbl.is Farbann framlengt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær mun þessi vitleysa USA enda?

Öfgarnar eru gjörsamlega orðnar svakalegar.  Fyrst átti þetta nú að vera land frelsisins þar sem allir máttu koma... Nú eru allir "innflytjendur" að verða að "plágu" í þeirra augum. Fyrst snerist landið út á að hafa frelsi til að gera það sem menn vildu gera, meðan jú, það bitnaði ekki á náunganum, en þá var nú málið frekar að drepa ekki náungann, sem auðvitað var ólöglegt :D

Nú má ekki orðið blóta og menn í fangelsi... tsk tsk tsk. Menn eru farnir að túlka sitt eigið frelsi sem svo að það byrji að hefta frelsi annara og hringavitleysan byrjar... Hvenær verður það orðið svo slæmt að þú mátt ekki reka við, ropa eða hósta á almannafæri, því það gæti jú haft einhvers konar skaðleg áhrif á náungann :D Þetta endar með því að fólki verður bannað að komast í snertingu við hvert annað á götum úti, ef mínir útreikningar eru réttir á þessari óútreiknanlegu  þjóð sem Bandaríkin kallast. 

Ekki annað hægt en að hlægja að þessari bölvuðu vitleysu sem uppúr þeim vellur, en það verra er :D þessi "frelsis" vitleysa er að byrja að teygja anga sína hingað að einhverju leyti sýnist manni :Þ  

 Má kannski bæta við, það hefði nú verið "skemmtilegt" ef þessi Breski sem læstist á salerninu þarna í 4 daga, hefði ekki verið Breti heldur Bandaríkjamaður, og stungið inn á endanum fyrir ósæmilega framkomu í garð klósettisins sem einhver hefði mögulega heyrt :D 


mbl.is Ákærð fyrir að bölva biluðu klósetti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðugt hjá dómurum! Sérstaklega eftir að...

Einn af fimm pólverjunum sem ákærðir eru fyrir nauðgun er kominn heim til Póllands... þrátt fyrir að hafa verið í farbanni.

Og þar fyrir utan er frásögn mannsins um ástand bílsins skrýtin, þar sem hann hefur sagt nokkrar mismunandi sögur.  Mjög vafasamt mál... og ef þessi kemst svo líka úr landi, þá þarf nú virkilega að fara að endurskoða réttarkerfið hér á landi, sem og hvernig eigi að haga málum þegar útlendingar gerist brotlegir, sérstaklega þá um eins alvarlega glæpi og talað er um hér að ofan.


mbl.is Gæsluvarðhald framlengt til þriðjudags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðugt... eða hitt þó heldur!

Þetta er ekki sniðugt tæki... sjálfstillandi gítar. Ástæðan? Ef byrjendur læra ekki að stilla gítarinn sinn hægt og rólega, þá fá þeir einfaldlega ekki tilfinningu fyrir því. Og spurningin er þar að auki hvort hægt sé að stilla þessa græju þannig að hún stilli þá gítarinn í aðra tóntegund, hvort sem er þá allan gítarinn niður eða upp um hálfan tón, heilan tón eða hækka og svo einfaldlega í dúr eða moll t.d. fyrir slide playing.

En að öðru leyti þá finnst mér nú lítið varið í þessa hugmynd ef ég á að segja alveg eins og er.


mbl.is Sjálfstillandi gítar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárhættuspil

Þar kom akkúrat svarið sem ég hef lengi leitað að... :D

Á Íslandi er fjárhætturpsil af nokkru tagi bannað, en í Bandaríkjunum telst Lottó sem fjárhættuspil. Á það þá ekki að gera það líka á Íslandi?  Mbl.is skilgreinir lottó sem fjárhættuspil...

Það virðist samt ekki vera gert hér á Ísland þar sem þú mátt ekki spila póker með entrance fee, þ.e. mót sem þú borgar þig inná, því það telst til fjárhættuspils... En þú mátt eyða eins miklu og þú vilt í lottó... þess vegna tæma bankareikning, yfirdrátt og klára heimildina á kredit kortinu til að kaupa þér eins marga miða og þú getur, og ef búðin fer eitthvað að stoppa þig af, þá ferðu í næstu búð.  En þú mátt ekki eyða kannski 2.500-10.000 krónum í pókermót... Þú mátt eyða eins miklu og þú vilt í skafmiða, en ekki í póker... Þú mátt eyða eins miklu og þú vilt í spilakassa, en ekki póker...

OG það besta við þetta allt saman er, er að þeir sem spila póker fyrir alvöru, þ.e.a.s. kunna að spila póker vita það manna best að heppni spilar mun minna inn í heldur en flest fólk grunar, en heppni spilar ALLT þegar kemur að Lottó, skafmiðum og spilakassa... Getur ekki lært á þessar maskínur, þó margir telja sig kunna á þetta og segja það lon í don, en það er bara ekki fræðilegur.  Þeir sem hins vegar verða góðir í póker... eru góðir af því þeir kunna leikinn.

Svo vildi talsmaður meðferðarheimilis spilafíkla banna rafrænan póker á íslandi því einhverjir eru að eyða alltof miklu í þetta... Eigum við þá ekki að banna áfengi líka því sumir kunna ekki að drekka og eru mjög mögulega áfengisfíklar? :)

Ég bara spyr... hvar eru rökin fyrir þessu rugli í sambandi við póker hér? Sumir hér á landi eru virkilega góðir í póker, og má þar nefna t.d. að íslenska liðið sem fór á heimsmeistaramót í póker endaði í 3ja sæti.... einn Íslendingur kom sér upp 10.000.000 á einum mánuði á því að spila...

Ég spila nú ekki mikið og þá heldur ekki fyrir teljanlegar upphæðir, en mér finnst rökin gjörsamlega tala sínu... Póker ætti lagalega séð að vera með öllu heimilaður.

Ég er hins vegar ekki að mæla með að póker verði leyfður sem slíkt fjárhættuspil að þú getir komið með mánaðarlaunin þín og eytt þeim í einu á einu borði... heldur því að mót verði leyfð, byggð á þeim rökum að það er enginn hemill á fólki sem getur eytt mánaðarlaununum sínum á einu bretti í spilakassa, lottó og/eða skafmiðum... enda nóg um fjárhættuspil á landinu... Eini munurinn virðist liggja í því er að peningurinn úr spilakössunum þetta rennur að einhverjum hluta til rauða krossins og svo til þeirra meðferðarheimila sem eru fyrir spilafíkla... sem er í sjálfu sér að skapa spilafíkla, sem verða væntanlegir "viðskiptavinir" heimilissins.

 Meira hef ég ekki að segja um þessa hringavitleysu Íslands og þversagnir sem þeir segja varðandi póker!


mbl.is Bankaræningi fær ekki happdrættisvinninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn væri Sinatra ef New New York væri (er Páll Óskar að missa það?)

Fréttin kemur reyndar frá Vísi, en ég ætla að leyfa mér að  

Ég verð að byrja á að ég þoldi ekki Sinatra hér á árum áður... En maðurinn er kominn í guðatölu hjá mér í dag, hef lært að meta þetta elífðarstykki sem söngvarinn var.

Hann líkir vinsældum Sinatra við Madonnu þegar hún söng Like a Virgin... Er maðurinn ekki með toppstykki?  Eða er hann með hálfan heilann eins og konan hér um daginn í fréttunum?

Ég ber ágætis virðingu fyrir Páli, hann er ágætis karakter og opinn fyrir öllu... En að segja að Sinatra væri ekkert án New York, New York (og kannski geri ég of mikið mál úr þessu) væri eins og að segja að Elvis væri ekkert nema fyrir Viva Las Vegas!... Hann gerði nú betur þegar hann varð eldri, enda ber ég meiri virðingu fyrir feitum Elvis en hinum granna, því meiri tónlistarmaður blundaði í honum á seinni árum að mínu mati, og enn betri rödd, þó svo að hann gleymdi textum og lá í gólfinu syngjandi í vímu sinni.. sorglegur endir á flottri fyrstu almennu rokkstjörnu mannkyns því miður!

Sinatra gaf út betri lög en New York New York, þó svo að hið fyrrnefnda sé eitt af þeim vinsælli... My Way (sem hann reyndar að eigin sögn þoldi ekki) , Love And Marriage, reyndar er gjörsamlega tómur í hausnum svona rétt um fimmleytið að morgni til, enda 15 tímar síðan ég vaknaði... 

Páll Óskar er hinn fínast tónlistarmaður, því neita ég ekki, og hann er söngvari með mikið live úthald (þá á sviði, blæs hvorki né hvæsir meðan hann syngur, geymir það milli laga virðist vera)  þó svo ég hlusti ekki á hans tónlist sem slíka, hef heyrt nokkur lög og hann er skemmtilegur karakter í útgáfum sínum af annarra manna lögum (sbr lagið úr Jesus Christ superstar þegar hann syngur kaldhæðnislega um frelsarann (er ekki mjög kristinn) í lagi sem ég þekki ekki nafnið á, koma fram hans leikrænu hæfileikar í söng. Túlkun hans er góð. 

 En hey! Ég fíla Tom Cruise fínt sem leikara.. :D need I say more? 

 

 


Eða snýst þetta frekar um tímann?

Ég veit nú ekki hversu tengd mín grein sé nákvæmlega þessu máli, en það spratt upp smá hugsun hjá mér í kringum þetta hins vegar. 

Mér finnst nú eiginlega líklegra að þetta snúist um tíma þegar kemur að mat, þ.e. þegar keyptur er tilbúinn matur í stað þess að elda. Þegar fólk vinnur t.d. hér frá 8-17, ekki komið heim fyrr en um 18 og þá á eftir að fara út í búð og kaupa mat (þ.a. eftir að ákveða hvað verður í matinn)... Þreyta af sökum vinnu ýtir auðvitað ekki undir að maður flýti sér í búðinni og maturinn verður ekki tilbúinn fyrr en kannski um áttaleytið.

Ekki góð þróun það, því sé einfaldlega auðveldar að kaupa tilbúinn mat. Gallinn hér er að tilbúinn matur er oft bara ekki ódýr hér (nema kannski í heitum borðum í búðunun)... Dýrt er að borða á veitingastað á Íslandi, enda sér maður fátt fólk sem fer nánast á hverju kvöldi út að borða, eins og tíðkast í sumum löndum (eða morgunmat)... Svo er verið að kaupa skyndibita mikið sem er einfaldlega oftar en ekki óhollur, eða í hið minnsta óhollari en heimamatur.  Hefur sýnt sig og sannast lengi, í rannsóknum um innihald og ástand þess fólks sem borðar mikið skyndibitafæði.

Ég persónulega held t.d. með hjón með börn, að það sé gott fyrir heimilið að hafa annað foreldrið heimavinnandi, enda sér maður hvernig börn eru orðni í dag... varla úti að leika sér, sitjandi jafnvel fyrir framan tölvuna eða sjónvarpið að eyða skemmtilegasta tíma lífs síns í leiða, get ekki trúað því að það sé gaman að sitja fyrir framan tölvu eða sjónvarp alla daga allan daginn, og ýtir þá bara frekar undir þunglyndi barna.   Þó svo að foreldrið vinni úti, þá væri 50-75% vinna mun skárri fyrir heimilið og börnin heldur en 100%

Skiptir þar engum togum hvort foreldrið væri heima. Veit ég hins vegar ekki hvort heimavinnandi foreldri (það sem kallaðist á árum áður heimavinnandi húsmóðir, enda var minna um það að karlarnir voru heimavinnandi á þeim tíma) sé einfaldlega vinnuheiti og efast um að ríkið borgi heimavinnandi fólki... enda væri það misnotað að vitleysingum hægri vinstri.

Ég efast um að þetta sé góð þróun að báðir foreldrar vinni 100%...  

 


mbl.is Hærri laun - færri húsverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var lagið!

Niðurrif sumra hús eiga að sjálfsögðu rétt á sér... Það er ekki nóg að segja "Þetta hús var byggt fyrir 120 árum", húsið verður að bera með sér ákveðinn sjarma gamals tíma. 

Mörg hús finnst mér (101 húsin) einfaldlega ekki falleg og sum þeirra sem verið er að reyna að varðveita hafa örugglega verið litin hornauga á sínum tíma þegar þau voru byggð. Sum þeirra eru svakalega falleg og þau skal hiklaust varðveit sem menningarafleið Reykjavíkur.

Ísafjörður býr yfir þessu húsi, sem að mínu mati býr yfir ákveðnum sjarma. Það er öðruvísi en flest húsin sem hér hafa verið byggð, og það eitt hefur mikð gildi.  Húsið virðist þar að auki búa yfir meiru en sjarma, en það er að þetta hús var greinilega þýðingarmikið í sögu bæjarins, bakaríin voru jú svakalega vinsæl í gamla daga (er nú lítill sjarmi yfir flestum bakaríum í dag því miður (sumum þó jú)), þegar boðið var uppá nýbakað brauð og alls kyns góðmeti.

Svona hús á ekki heldur að færa heldur að einfaldlega að leyfa þeim að standa.  Fyrir þeim er þetta sennilegast eins og fyrir okkur að láta rífa elsta hús Reykjavíkur af því bara.... Eitt af þeim eldri brann nú hér fyrir ekki löngu síðan, og ætlunin er (eða var) að byggja húsið upp í upprunalegri mynd.

Sum húsin eiga jú fyllilega rétt á sér.


mbl.is Húsfriðunarnefnd vill varðveita Norska bakaríið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

ViceRoy

Höfundur

ViceRoy
ViceRoy
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband