Færsluflokkur: Bloggar
31.10.2007 | 18:52
Gera þeir boð á undan sér eða?
Svona kannanir eru ekki marktækar nema þær séu gerðar stakt og stöðugt yfir árið og faldar fyrir öllum þeim verslunum, þ.e.a.s. að könnunarfólkið fari einfaldlega og versli nákvæmlega eins og þau myndu gera nema með ákveðinn, langan innkaupalista sem bornir eru svo saman.
Það er nú þannig með öll fyrirtæki að þegar einhver könnun er gerð, hvort sem það er á verði eða ástandi, þá er allt sjænað, bónað og sett í fínasta púss, hvort sem er verð eða útlit. Þessi fyrirtæki sem reka þessar kannanir verða bara að átta sig á því... Meira að segja mörg fyrirtækin vita það og því hafa þau (sem gera það) látið gera fyrir sig könnun á mánuði hverjum varðandi viðmót starfsfólks og þjónustulund og hvað eina... Það er alveg leynt hverjir það eru og hvenær það gerist... Auðvitað á það líka að vera um verðkannanir frá hinum og þessum stofnunum, oft og ósýnilegt.
Segja vöruverð hækkað þegar ekki er von á könnunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2007 | 16:43
Það minnkar einmitt árásirnar!
Ísraelar eru hálfvitar (ríkistjórn landsins þ.e.a.s.). Þeir hafa ráðist á mörg ríki í kringum sig síðan þetta ríki var stofnað og svo skilja þeir ekkert í því hatri sem arabar hafi á Ísrael. Þeim var úthlutað þessu landi því Palestína var aldrei fullgilt ríki... Í augum hverra var það ekki fullgilt eða sjálfstætt eða hvað það er nú kallað?
Ég hef ekkert á móti gyðingum sem slíkum, en Ísralesstjórn sýnir djöfullegan hroka og fíflaskap haldandi því fram að þeir séu hin guðsvalda þjóð og ég veit ekki hvað og hvað. Það eru komnar 2 trúarhópar (trú á Jesú og svo Múhammeð) eftir þá sem telja sig guðs útvalda trúin... hvort á meiri rétt á sér? Gyðingar eru alls staðar... hví þurftu þeir að fá landsskikann sem þeir töpuðu fyrir löngu löngu síðan? Ekki að ég þekki sögu þessarar þjóðar nógu mikið til að segja svona en fjandinn hafi það.
Ísraelar þurftu að berjast fyrir sinni þjóð samkvæmt biblíunni.. ekki þurftu þeir að gera það núna, hins vegar þarf Palestína að gera það og lít ég þá á Palestínu sem hina núverandi guðs útvalda þjóð.
Ísraelar vilja lama Gasa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 21:22
En hvað um þá sem keyptu þá af einhverjum?
Veit nú ekki hvað aldurstakmarkið er, en mér finnst svolítið hart að kæra umsvifalaust til lögreglu til dæmis 15-16 ára krakka fyrir að vera með falsað armband á sér, sérstaklega þegar menn gera það oft að kaupa helling af miðum (í þessu tilviki armbönd) og selja á netinu eða hvað. Getum við umsvifalaust ákveðið hvaða krakk veit hvað sé löglegt og hvað ekki þegar það kaupir í sakleysi sínu miða á eitthvað? Eða til dæmis einhver sem er misþroska sem virkilega langar að fara?
En eins og ég sagði, veit ekki aldurstakmarkið, en hart finnst mér, þar sem menn eru alltaf að leika á auðveldar bráðir til að græða smá pening.
Borið hefur á fölsuðum Airwaves armböndum í umferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2007 | 19:38
Rollur í súludansinn...
Og láta beljur standa á gólfinu, tilbúnar í mjólkun fyrir þurrþyrstan landbúnaðarmanninn. Kannski lifnar þá eitthvað í mönnum í Borgarbyggð.
Sé reyndar ekki hvernig landbúnaður á að hafa að segja til um þetta. Þetta er ekki ósvipað og Guðni Ágústs færi að segja Þorgerði hvað má og hvað má ekki í menntamálum... Þó er maðurinn með sérkennilega skemmtilegan orðaforða, mætti hrista agnarögn upp í íslenskukennslu og kunnáttu ungra nemenda. Láta manninn gefa út bókina "Íslenskir Guðna-frasar".
En aftur... bara sé ekki samhengið á milli nektardans og landbúnaðar
Landbúnaðarnefnd leggst gegn nektardansi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2007 | 22:16
Ef allir ríkir hugsuðu svona
Þetta er mikill og mætur maður, óeigingjarn og veit hvað er að gerast í Afríkunni.
Já, það gefa margir peninga jú, en ef það væru til dæmis 15 manns sem væru að gefa sömu upphæðina sem færi í uppbyggingu á sama stað, væri þetta (ef ég reikna sænsku krónuna rétt um 11 kr er það ekki?) væri þetta rúmur 2.2 milljarðar til uppbyggingu. Nóg er um milljarðamæringana í heiminum, þannig að ef dæmið gengi upp væri hægt að bjarga þorpum og mannslífum og sjá þeim fyrir nauðsynjun á ekki svo löngum tíma.
Þetta er svo skrýtið mál því ég man að fyrir rúmum 20 árum þegar var alltaf talað um að maður ætti nú að klára matinn sinn því það væri fólk í Afríku sem hefði ekkert að borða, alla daga og væri að deyja úr hungri. 20 árum síðar, hafa málin jú breyst, EN, það væri hægt, ef vilji þjóða og ríkustu einstaklinga heims, að koma Afríku í nokkuð góða stöðu almennt. Ég veit kannski þetta er bjartsýnt hjá mér og órökrétt hugsun að þetta myndi vera svo einfalt, en hver segir að það megi ekki reyna?
Tek ofan hatt minn fyrir öllum þeim sem vinna nú og hafa unnið hjálparstarf einhvern tíma í lífi sínu, stutt eða lengi. Hver hjálparhönd skiptir og hver króna skiptir. Ég gaf eitt sinn 1.500 kall þegar ég var að verða alveg blankur, en ég sagði bara skítt með það, þetta kemur sér betur fyrir einhvern annan. Og ef ég ætti tugi eða hundruði milljarða... humm... Milljarður úr einum vasa árlega getur gert meira en margan grunar.
Jamm gaman væri ef þetta væri svo einfalt... Er það ekki? Eða er það kannski svo?
Sænskur rithöfundur gefur heilt SOS-barnaþorp í Mósambik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2007 | 13:06
Ekki hægt að láta annan leika hann!
Ian McKellen reiðubúinn að endurtaka hlutverk Gandálfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 12:25
Held það sé nú bara ein ástæða fyrir þessu!
Það er ekki sjens fyrir neinn að lifa nema vinna eins og hálfviti á þessu landi, geta nú ekki margir verið heimavinnandi. Allt of dýrt að búa á Íslandi... Íbúðaverð er fáranlega hátt og þ.a.l. tók fólk sig til og hækkaði leigu til fjandans... Matur er dýr miðað við lægstu laun... Fararkostir eru dýrir, hvort sem er í verði eða rekstri, svo er strætó nú ekki beinlínis ódýr, 280 kr. fyrir farið fyrir utan heimskulega ferðaáætlun sem einkennist af löngum ferðatíma fyrir tiltölulega stuttar ferðir (að sitja í strætó í klukkutíma til að komast 6 km, er örugglega fljótlegra að ganga)...
Ég sé ekki að einvher (nema menntaður maður og þó varla það) geti lifað hér nema, eins og ég sagði, unnið eins og hálfviti alla daga, allar vikur, alla mánuði út allt árið.
Man að Pétur nokkur Blöndal sagði að það væri ekkert mál að lifa á 90.000 kr. á mánuði (var í kastljósinu fyrir um 1-2 árum síðan)... Hann gæti það léttilega. Langar að sjá hann reyna það. Gætum hækkað það í 120.000 svona til að jafna út verðbólgu og verðlag síðan þá.
Íslendingar duglegastir Evrópuþjóðanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.10.2007 | 17:39
Hvað á að gera við svona drullusokka?
Þetta er alveg fáranlegt að það sé ekki fylgst mun betur með þessum verktakafyrirtækjum. Svona drullusokkar eins og þessir verktakar virðast vera, svindla ekki bara á kerfinu og fólkinu, heldur halda launakerfinu í þessum geira í fáranlegu ójafnvægi.
Í staðinn fyrir að fólk fái sín laun og sínar launahækkanir í takt við kjarasamninga, þá reka þeir liðið og fá útlendinga sem þekkja ekkert á kerfið í vinnu á lágum launum... Þarf ekki líka að skoða hvort þetta hafi verið svört vinna? Ætti þá ekki fyrirtækið að greiða háar sektir fyrir að borga mönnum án þess að gefa það upp til skatts?
Á að láta þá borga þessum verkamönnum háar skaðabætur án dómsstóla og láta þá sæta gríðarlegum sektum fyrir svona uppákomu.
Ef verkalíðsfélögin eru ekki að fylgjast með þessu, til hvers eru þá verkalíðsfélögin? Hélt þau ættu að vera til hjálpar fólkinu. Og hvar eru Samtök Atvinnulífsins í þessu? Af hverju bera þeir ekki þá ábyrgð að skoða mál fyrirtækja sem undir þeim eru?
Kannski ég hafi rangt fyrir mér, en þetta er grafalvarlegt mál að öllu leyti fyrir íslenskst atvinnulíf sem allir hafa vitað af... Held það sé kominn tími á að það verði eitthvað gert í þessum málum fyrst eitt málið er komin almennilega upp!
Ásakanir um lögbrot gegn starfsmönnum GT verktaka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.10.2007 | 18:04
Fínasta framtak
Leigubílar skipta út gula litnum fyrir bleikan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2007 | 23:56
Kröfuharka bankanna
Bönkum ofbauð kröfuharka nemendafélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ViceRoy
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 11903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar