Færsluflokkur: Bloggar
29.9.2007 | 14:36
Og við virðumst enn státa okkur af...
því að vera með besta heilbrigðiskerfi í heimi. Jú ég neita því ekki að kerfið er gott, þar sem ef eitthvað kemur fyrir og þú ert lagður inn þá borgarðu lítinn hluta upphæðar (reyndar ekki ef þér er sleppt út samdægurs, þá þarftu víst að borga meirihlutann)...
En ég kalla ekki gott heilbrigðiskerfi gott ef það vantar um 100 hjúkrunarfræðinga á Landsspítalann... Ég kalla það ekki gott heilbrigðiskerfi þegar starfsfólk, hjúkrunarfræðingar sem og læknar eru ekki með góð laun, enda hafa margir af bestu læknum landsins hypjað sig til annarra landa með miklu betri atvinnutækifæri, sem skilur okkur eftir með, tjah erfitt að orða það, en skilur okkur eftir með vanhæfari lækna. Ekki að ég sé að segja að læknarnir okkar séu vanhæfir eða lélegir á einhvern máta, en þeir bestu eru farnir.
Hvaða þjónusta er það ef þú leggst inn og færð lækni sem er búinn að vinna of mikið? Hvaða þjónusta er það að fá hjúkrunarfræðing sem er líka búinn að vinna of mikið... Er jafnvel pirraður og þreyttur (læknir o/e hjúkrunarfræðingur) og jafnvel misgreinir eitthvað þó það sé ekki nema smávægilegt.
Ef ríkið á að fara að gera eitthvað, þá verður að hækka laun þeirra ríkisstarfsmanna sem þurfa að bera ábyrgðina í landinu...
Lögreglan á að vera með góð laun... Starfsfólk sjúkrahúsa eiga að vera með góð laun... Kennarar eiga að vera með góð laun (bera jú ábyrgð á menntun okkar barna og framtíðarfólki landsins)... lengi má telja.
Stefnir ekki í gott í framhaldinu... en það hefur svo sem aldrei gert það með þessum frummannahugsunarhætti.
Vantar 100 hjúkrunarfræðinga á Landspítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2007 | 19:59
Uppfyllingarefni af Vísi.is?
Þykir nú arfaslakt að sjá grein á mbl.is sem er nákvæmlega eins orðuð og eldri grein á vísi.is....
Annaðhvort er þetta copy og paste vinna lélegra fréttamanna eða sami fréttamaðurinn? Humm
Iðnaðarráðherra gæddi sér á lambakjöti sem alið er á hvönn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2007 | 16:06
Og hvað með Kyoto bókunina?
Marga þvælu hef ég lesið í fréttum af ríkistjórn Bandaríkjanna en þessa þvælu tek ég álíka trúlega og þegar ég heyrði að Pétur Blöndal sagði að það væri ekkert mál að lifa á 90 þúsund krónum á mánuði.
Stjórn USA sagðist ekki vilja einu líta við þessari "heimskulegu" Kyoto bókun því þetta væri einfalt bull. Nú er eitthvað verið að klóra í bakkann rétt fyrir kosningar eða þá að reyna að fá heiminn til að líta öðruvísi á USA, þar sem viðhorf heimsins við USA hefur farið gríðarlega niður á við.
Ætti nú að fara að gera eitthvað við þessa blessuðu stjórn bandaríkjanna og fá þá til að opna sín augu vandlega og sjá að þetta er ekki besta þjóð í heimi eins og þeir halda ennþá fram.
Rice segir Bandaríkjamenn taka gróðurhúsaáhrifin alvarlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.9.2007 | 12:14
Rétt skal rétt vera, en...
Mugabe sakar Bush um hræsni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2007 | 11:02
Nokkrar lið? Really?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2007 | 05:29
Gæsluvarðhald + Tími = Tími - gæsluvarðhald
Á að bjarga þessum hálfvitum með 6-12 mánaða gæsluvarðhaldi sem engu skilar og draga það frá dómnum?
Held nú síður! Henda þessum hálfvitum þessa 300.000 manna lands strax í Jailið og láta þá vinna 12-14 tíma á dag og vinna fyrir sínum mistökum... Þeir hafa gott af því þessir gaurar!
Fimmmenningarnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2007 | 05:07
Bandaríkjastjórn
Þeir gefa lítið í viðvaranir Bin-Ladens... humm hann gaf viðvaranir fyrir árásina 2001 og hvað gerði stjórnin? Ekki NEITT!
Skammist ég mín að segja það... nei... ég vil sjá þessa ríkisstjórn falla á versta veg sem hægt er, hver sem sú leið er...Bush jr. stjórnin er sú sem uppi hefur verið. Við köllum Nixon glæpamann... En jesús pétur og allir þeirra menn...
Mér líkar fínt við bandaríkin eins og mér líkar við ÖLL önnur lönd í heiminum... Hins vegar eru svartir sauðir sem stjórna ríkisstjórnum eða þá undirheimum og gera lítið úr þeim löndum sem þeir búa í af valdagræðgi einni og sér.
Ekki er ég mjög trúaður maður en vá... hvað fólk getur verið mikil fífl og látið leiða sig áfram í heimsku!
Bandaríkjamenn gera lítið úr hótunum Al-Qaída | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 18:53
Þórhallur klúðraði þessu gjörsamlega!
Horfði á spaugstofuna síðasta laugardag... Mikið rosalega var þetta eitthvað vonlaust grín í gangi. Ef Þórhallur sér um hvernig þátturinn eigi að vera (sem dagsskrárgerðarstjóri RÚV) þá er hann með einn versta barnahúmor sem ég hef á ævi minni séð og heyrt. Það var einn og einn góður punktur í þessu, en varla stökk bros í mínar varir við áhorfið.
Þeir hefðu frekar átt að láta spaugstofuna klára næstu 2 ár óbreyttri og leyfa þeim að klára 20 ára feril saman með stæl. Að vera að koma með aukaleikara í þetta er alveg fáránlega glatað eitthvað. Dyggir aðdáendur Spaugstofunnar vilja hafa þetta óbreytt og getur þetta húmorslausa manngrey ekki drullast til að breyta þættinum í upprunalega mynd!?
Ef ég myndi lenda á spjalli við Þórhall myndi ég einfaldlega segja við hann "Þú ert HÆTTUR á stöð 2 vinurinn! Þetta er ekki Fóstbræður eða stelpurnar... Þetta er spaugstofan, og við viljum gjarnan halda henni þótt stundum virki þreyttir".
Styðja Randver | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 18:46
44,1 eða 45 klst vinnuvika?
Og það á sem sagt að bitna á þeim að þessi litli munur á viku hverri muni þá um 20-30% af launum?
Borga þessu fólki bara góð laun þannig að þessar stofnanir fari nú að vinna á einhverjum hraða. Fullt af duglegu fólki í þessum stöðum, en hins vegar eru líka húðlatir einstaklingar sem nenna ekki neinu og vita varla neitt, og það er þá hægt að umturna þessum mun á starfsmönnum ef að launin hækka og vilji fólk til að vinna hjá ríkisstofnun verði meiri.
Hærri laun eiga að hvetja fólk til að vinna harðar af sér og þá er líka þar að auki hægt að taka fólk frekar á teppið.
Allt að 30% launamunur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.9.2007 | 19:05
Fáránlegt
Við getum jú litið til þess að maðurinn játaði brot sitt og við það sé dómur mildaður.
AUÐVITAÐ játar maðurinn brot sitt þar sem hann getur varla snúið sig út úr málinu, gerðist í verslun sem segir okkur að hann hafi væntanlega verið allsgáður eða þó með það góða rænu... Þó svo ekki þá hljóta að vera nægilega mörg vitni að það þýði ekkert að neita sök. Og þá játar maðurinn auðvitað, minnkar dóminn!
Nokkur hnefahögg og sparkað í hana liggjandi telst jú harkalegt en come on! 30 dagar, skilorðsbundinn dómur! Ætla dómarar að fara að dæma í ofbeldismálum eins og þeir hafa verið að dæma í kynferðisbrotamálum? 2ja mánaða fangelsi fyrir að misnota barn til lengdar? 2 mánaða fangelsi fyrir hrottalega nauðgun?
Þetta er að verða meiri og meiri djókur þetta réttarkerfi á þessu blessaða landi. Ok ok nú segja sumir gaurarnir "Refsing gerir ekkert"... Nei? Hvaða úrræði höfum við akkúrat NÚNA annað en fangelsisdóm? Engin. Anger management eða reiðistjórnunarnámsskeið eins og þau eru kölluð hér, gera nú ekki lítið nema sjúklingurinn vinni í sínum málum sjálfur. En á meðan ekkert er virkilega að virka þá eru það fangelsin og þau flýja menn ekki (nema kannski Litla-Hraun).
Og ef ekki fangelsi... fyrir svona árás, árs skilorð minnst og háa háa sekt og skaðabætur.
Skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á konu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
ViceRoy
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 11903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar